Fataherbergi

29.12.2011 - 21:03

Drauma fataherbergið....
Það er svo gott að láta sig dreyma, ég var að fara í gegnum tölvuna mína og fann þessar myndir sem ég hef sankað að mér einhverstaðar á netinu.
Finnst þessi fataherbergi æðilseg, fötunum mínum færi líka svo vel að vera þarna og eigum við eitvað að ræða það að hlamma sér í sófann í morgunsárið og planleggja dress dagsin.....góður draumur* 

 

...Svo ekki sé minnst á elsku skóna....mmmmm

Þetta fataherbergi er auðvitað ódauðlegt, Dásamlegt alveg og stenst tímanns tönn en þetta er auðvitað fataherbergið hennar Carrie vinkonu okkar úr Sex and the city. 

Já og ég væri alveg til í að hanga inn í fataskáp ef hann væri svona eins og hjá þessari :-)

xxx
Andrea 

Til baka